18.2.2007 | 18:43
Djamm og ekki-fréttameðalmennska
Ég er djammandi og tilgangslaus. Það var glaumur í fyrrakvöld og aftur glaumur í gærkvöld, án nokkurrar innistæðu. Árshátíð Orators var á föstudag var reyndar mikið grín og gaman (og ég fegin að þurfa ekki að mæta á Landbúnaðarþing f.h. Morgunblaðsins í sama sal sjö tímum seinna eins og í fyrra -allt að því ennþá ölvuð að sjálfsögðu).
Og þegar maður gerir sér grein fyrir að það verður ekkert af viti úr kvöldinu vegna þreytu og þynnku frá kvöldinu áður, þá er auðvitað mjög skynsamlegt að skella sér bara aftur í partý. Og láta morgundaginn hafa sína þjáningu.
Druslaðist að vísu seint út og náði þ.a.l. ekki að kíkja í blaðamannapartý á Rex, en sé að kollegunum hefur fundist gaman. Blaðamannafélagið búið að fatta að það þýðir alls ekki að reyna að fá þetta fólk til að dansa. Því var ekkert galtómt dansgólf á Borginni að þessu sinni heldur bara blaðamenn þar sem þeim líður best: Á barnum. Slúðrandi reykjandi drekkandi og daðrandi. Þegar ég sendi mjög formlegar fyrirspurnir frá mér eftir miðnættið, um hvort blaðamenn væru enn í stöði og hvort ég þekkti einhvern ennþá á rex, varð hins vegar fátt um svör. Heyrðist ókeypisið á barnum vera farið að segja sitt.
---
Svo vil ég segja BRAVÓ fyrir Davíð Loga sem tekur ekki þátt í fréttameðalmennsku. Að moka skítinn eins og það er kallað, eða að "afgreiða" fréttir. Hann hefur endurtekið stigið út fyrir kassann í sinni umfjöllun og átti verðlaun fyrir Guantanamo greinarnar alveg innilega skilin.
Og það var djarft að veita Kompási verðlaun fyrir rannsóknablaðamennsku, en mér finnst nauðsynlegt að hafa breidd í blaðamennsku á landinu og er því hrifin af þessari ákvörðun. Fjölmiðlar á borð við Kompás eru auðvitað í meiri hættu að misstíga sig en þeir íhaldssamari, en geta fært hluti fram í dagsljósið sem aðrir gera ekki.
Auðunn Arnórs er einn af þeim sem hafa lagt mest af mörkum til að gera Fréttablaðið að öflugu blaði. Hann afgreiðir ekki heldur. Átti flotta spretti um stjórnarskrána og fær nú verðlaun fyrir Evrópuumfjöllun sem ég hef ekki náð að fylgjast nógu vel með. Nú finnst mér að Fréttablaðið eigi að gera efnið hans Auðuns aðgengilegt á Netinu (ég finn það amk ekki, hafi það verið gert) í þágu fólks sem hefur verið fjarverandi ofl.
---
Og ég bendi enn á Vefritið, þar sem er flott helgarumfjöllun um launaleynd.
Bloggar | Breytt 19.2.2007 kl. 19:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2007 | 15:34
Mismælgi ársins 2006
Flokkaflakkari er tízkuorð dagsins. Og tízkufjölmiðill dagsins er Krónikan. Takk fyrir skemmtilegt fæðingarhóf í gær.
Það sem er hinsvegar alls ekki í tísku eru ummæli mín frá í desember:
Ég sit í húsi í litlu þorpi í regnskóginum á Fiji. Í húsinu eru fimm konur. Við erum allar nýbúnar að leggja okkur á gólfinu eftir matinn, sem var góður og borðaður með höndunum. Ég búin að sofa mjög fast því gólfið er bara nokkuð þægilegt og þakið mottum ofnum úr þurrkuðu bananalaufi, með heyi undir. Við amma vöknuðum báðar jafn myglaðar með hönd undir kinn.
Svo á að kenna okkur að vefa svona bananalaufamottu. Anna Pála fer í panikk og rifjar upp tíma sinn sem handavinnunemandinn frá helvíti. Það sem átti að koma út var eitthvað á þessa leið "ég er sko ekkert góð í hlutum þar sem hugur og hönd fara saman. Get helst bara notað hausinn einan í einu." Það sem kom hins vegar var eitthvað svona:
"I´m not sure if I should try. You know, in school I was never good at such things. I could only manage well in the subjects where you use your brain."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.2.2007 | 16:15
SJS & NATO
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.2.2007 | 05:38
Röskva vinnur meirihluta. You can´t beat the feeliiiiiing...
Ég er svo ofsalega, ofsalega sátt núna!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Röskva - rödd stúdenta, er málefnalega sterkasta fylkingin af þeim sem bjóða fram til Stúdentaráðs HÍ.
Kjósum jafnréttismál í forgang og kjósum skilning á hlutverki SHÍ sem þrýstiafls. Kjósum frumkvæði og framkvæmdagleði. Kjósum almenna gleði! Kjósum þekkingu og reynslu í stærstu hagsmunamálunum, svo sem lánasjóðsmálum sem Röskva hefur farið með undanfarin tvö ár, með góðum árangri. Umfram allt: Kjósum.
Svo mætum við á KosningaRöskvu á Deco í Austurstrætinu á fimmtudagskvöld!
6.2.2007 | 00:35
Í framboð fyrir Framtíðarlandið

Ég tók mig til og sagði upp áskrift að stjórnmálaflokkum um daginn. Út af vinnunni. Þrátt fyrir nokkrar tilraunir á undangengnum árum hugsa ég þó að ég sé enn í Sjálfstæðisflokknum. Þessir apaheilar mega þá bara hafa mig ef þeir halda að það sé gott fyrir þá. Ég gæti kannski farið að skrifa innblásnar greinar um þjóðmálin í blöðin og titlað mig sem skáld og Sjálfstæðiskonu.
En ég var að heyra skýringuna á því af hverju ég skráði mig úr einum tilteknum flokki:
Ég er á leið í framboð fyrir Framtíðarlandið. Það hafa náttúrulega margir komið að máli við mig um þetta undanfarið. Og við erum búin að funda ég og Andri Snær, Ómar Ragnars, Jón Baldvin og Magga Sverris. Auk okkar verður svo amma mín á listanum og Bono skipar heiðurssætið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.2.2007 | 17:13
Leitum innblásturs víða
Í gærkvöldi sátum við Sunna systir og skemmtum okkur yfir þeirri mætu bók Mary Young, Tízkubókinni (In Search of Charm) frá 1963. Í miðjum tólfta kafla "Fyrsta staðan," klingdu upphafsorðin einhverjum bjöllum. Og það rann upp fyrir mér að Addi Kitta Gau gæti hafa fundið í þessari bók innblástur fyrir ræðu formanns á landsþingi Frjálslyndra. Lykilorðið er að sjálfsögðu vaxtarverkir:
"Eruð þér í dálitlum vafa um hæfni yðar í starfið? Ég endurtek, öllum er þannig innanbrjósts! En hafið það hugfast, að fyrirtækið valdi yður í stöðuna og hlýtur því að hafa trú á yður. Og ennfremur þetta: Þeir vita vel að þér þurfið tíma til að ná tökum á verkefnunum. Kallið allar efasemdir yðar "vaxtarverki."
Ýmislegt í þessari bók til viðbótar gæti nýst í starfi stjórnmálamanna, þ.á.m. undirkaflinn "Örugg raddbeiting." Jafnvel væri hugmynd að kíkja á "Að tala of mikið."
Að ekki sé minnst á "Að fara út með kavaleranum að kvöldi til kvöldverðar í veitingahúsi."
1.2.2007 | 22:47
Svitaball Röskvu
Þessi magnaða mynd var tekin á Svitaballi Röskvu 2006. Þessi rómaða árlega skemmtun fer í flokk með skemmtilegustu partýum hvers árs. Ég er þessi að reyna að vera þokkafulla. Takið eftir smekklegum appelsínugulum netabolnum og hvernig hann fer við himinblátt pilsið. Já, svona klæddi fallega&fræga fólkið sig árið 2006.
SvSvSvitaball Röskvu 2007 verður annað kvöld, föstudaginn 2. febrúar á Hressó. Konseptið er að vera sem allra sveittastur og dansa sem mest. Jafnvel hella yfir sig bjór af stuðinu einu saman.
30.1.2007 | 19:03
Þjóðsöngur í fimmta gír
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.1.2007 | 18:28