Ég fíla ekki makaleysið

Já nei, þetta er ekki einkamálaauglýsing fyrir sjálfa mig. En spurningin um makalaus partý kom aðeins við sögu í gær þegar risa Vefritspartý var í uppsiglingu. Ég tilkynnti maka eins úr pennahópnum að hún myndi að sjálfsögðu mæta í partýið. Skárra væri það nú. Kannski var ég ekki alveg hlutlaus því hún Anna er vinkona mín sem ég vildi endilega fá í partýið. En ég stend samt við þetta prinsipp. Makalaus partý eru asnaleg. Lífsförunautarnir eiga að vera með. Kynnast heimi maka síns og gagnkvæmt.

Ég átti pistil í Fréttablaðinu í gær. Ég ætla að segja þetta eins oft og á þarf að halda: Bræður og systur, verið velkomin til Íslands!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Þetta er nú alveg makalaust hjá þér góan ;)   en ég er alveg sammála þér,- bæði með maka og og BRÆÐUR OG SYSTUR- VERIÐ VELKOMIN TIL ÍSLANDS

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.5.2008 kl. 22:30

2 identicon

Frábær pistill hjá þér elsku vinkona, tek heilshugar undir orð þín!

Er hittingur ekki annars on á þri.? :)

Vigga (IP-tala skráð) 25.5.2008 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband