"Lögfræðingur"

Ég er útskrifuð með BA í lögfræði. Til hamingju með það Anna Pála mín. Þetta var nú aldeilis fínt hjá þér.

Vildi ekki halda stóra veislu fyrr en eftir tvö ár en þess í stað var dásamlegt matarboð með dásamlegum tólf manns og eftir það frábært partý hjá Völu minni Bé sem var að útskrifast sem alvöru lögfræðingur.

Pabbi hélt stutta tölu í matarboðinu. Skaut á ömmu fyrir að vera enn að reyna að ala sig upp. Hann ætlaði hins vegar að hætta að ala mig upp frá og með þessum degi. "Nú er ég hættur. It´s all yours. Ég bara styð þig."

Mamma sagðist ekki vera hætt að ala mig upp.

 

Nú þarf ég að snúa mér aftur að hópverkefninu um faðernismál.

E.s. Mér líður vel að vita að í Eþíópíu er ljónakisa að nafni Anna Pála að hugsa um snillingana mína þar, sbr. komment við seinustu færslu. Hvernig væri nú að konan Anna Pála léti sjá sig í Eþíópíu. Það er draumurinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Kamilla Einarsdóttir

Já vúhú! Til hamingju!

Eva Kamilla Einarsdóttir, 30.10.2007 kl. 09:57

2 Smámynd: Helga Vilborg Sigurjónsdóttir

Heyr, heyr!! - Já hvernig væri það??? Þú ert allvega ávallt velkomin til okkar!

bestu kveðjur úr Afríkusólinni

Helga Vilborg Sigurjónsdóttir, 30.10.2007 kl. 11:28

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Bestu hamingjuóskir vestan úr bæ.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.10.2007 kl. 17:54

4 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Til lukku með áfanga á leið í alvöru lögfræðinginn.

Auðvitað hættir mamma þín ekki að ala þig upp,- þó það nú væri,- og pabbi þinn má nú mikið passa sig ef hann ætlar að standa við stóru orðin,- trúi því ekki að það gangi of lengi hjá honum ;)

Bestu kveðjur að norðan, snjór og næs

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 30.10.2007 kl. 19:14

5 identicon

Einn rembings í tilefni af áfanganum

Hrund (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband