23.1.2007 | 22:07
Helgin..
.. Var góð. Á dagskrá var m.a:
1. Á föstudeginum listakynning Röskvu. Það var magnað að standa úti í sal, grenjandi af stolti og búin að klappa af sér hendurnar fyrir þessu fólki sem ég átti að þessu sinni engan þátt í að stilla upp á listann. Nema hvað. Þetta er samt afburðagóður listi, alveg eins og sá í fyrra sem er ennþá í framboði. Þetta fólk á eftir að stjórna Stúdentaráði frábærlega. Bendi á þessa grein hans Kára, sem er í fyrsta sæti í ár, á Vefritinu.
2. Á laugardeginum Önnukvöld til minningar um ömmu sem dó í fyrravor. Haldið á ofurstemmningarstaðnum Sægreifanum að frumkvæði n.k. fóstursonar hennar, Svenna Sveins, sem er snillingur eins og amma var. Humarsúpa. Söngur. Í bæinn með mömmu og pabba og vinum þeirra á eftir. Gaman. Hluti úr Gróskumálþingi var líka gaman. Oddný Sturlu fór á kostum með erindi um femínisma og jafnaðarstefnuna.
3. Á sunnudeginum vinnan. Þið eruð alveg ágæt.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Femínismi, Fjölmiðlar, Stjórnmál og samfélag, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:10 | Facebook
Athugasemdir
gott að þú áttir góða helgi.....
Ólafur fannberg, 24.1.2007 kl. 08:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.