Versta byrjun á deginum

z_anna_pala_teiknimynd.jpg

Djöfull hata ég að sofa yfir mig.

Eftir hádegi var mér náðarsamlega tjáð að það væri ennþá skrifað á ennið á mér "Yfirsof." Eftir að hafa vaknað með andfælum í morgun, einum og hálfum tíma seinna en áætlanir stóðu til, er ég varla ennþá búin að jafna mig. Dagurinn byrjar einhvern veginn aldrei.

Hann varð samt ágætur hingað til. Gærkvöldið var sérlega skemmtilegt, fyrri hlutinn á Pressukvöldi um blaðamenn og skoðanir þeirra. Þurfti reyndar að fara þegar umræður voru að komast á flug, til mikilvægs fundar við vissar tilvonandi þungaviktarkonur í þessu samfélagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta eitthvað skot á háttvirta efnafræðinga?

Ester (IP-tala skráð) 21.6.2006 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband