20.6.2006 | 18:30
Versta byrjun á deginum
Djöfull hata ég að sofa yfir mig.
Eftir hádegi var mér náðarsamlega tjáð að það væri ennþá skrifað á ennið á mér "Yfirsof." Eftir að hafa vaknað með andfælum í morgun, einum og hálfum tíma seinna en áætlanir stóðu til, er ég varla ennþá búin að jafna mig. Dagurinn byrjar einhvern veginn aldrei.
Hann varð samt ágætur hingað til. Gærkvöldið var sérlega skemmtilegt, fyrri hlutinn á Pressukvöldi um blaðamenn og skoðanir þeirra. Þurfti reyndar að fara þegar umræður voru að komast á flug, til mikilvægs fundar við vissar tilvonandi þungaviktarkonur í þessu samfélagi.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Facebook
Athugasemdir
Er þetta eitthvað skot á háttvirta efnafræðinga?
Ester (IP-tala skráð) 21.6.2006 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.