Og erum við Borgar ekki bara sammála

f_my_pictures_borgar_kjutipae.jpg

Aldrei fór svo að við Borgar Þór Einarsson gætum ekki verið sammála um eitthvað. Leyfi mér að birta eftirfarandi tilvitnun úr greininni hans sem birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn. 

"Til eru þeir sem halda því fram að erlent vinnuafl taki atvinnu sem ella hefði komið í hlut Íslendinga. Því miður á slíkur málflutningur oftar en ekki rætur sínar að rekja til óæðri hvata en að hafa áhyggjur af atvinnuleysi. Þar að auki lýsa slík sjónarmið algjörri vanþekkingu á eðli atvinnulífsins. Gengið er út frá því að atvinna sé föst stærð og að framlag hvers og eins á vinnumarkaði hafi enga þýðingu fyrir verðmætasköpun.

Ekki einungis er slíkur málflutningur rangur heldur beinlínis niðrandi fyrir launþega almennt. Það er því skömm að því þegar meintir talsmenn launþega leyfa sér slíkan málflutning. Goðsögnin um að erlent vinnuafl taki atvinnu af Íslendingum er álíka gáfuleg og að aukin þátttaka kvenna á vinnumarkaði hafi valdið hér stórkostlegu atvinnuleysi."

Ég klappaði að vísu ekki fyrir öllu í greininni og þ.á.m. ekki byrjuninni. Auðvitað má verkalýðsforystan hafa pólitísk áhrif, en ekki hvað. Hún stendur fyrir stóran hóp í samfélaginu og pólítik er jú bara það hvernig samfélag við viljum byggja, við þurfum ekki endilega að gera það eingöngu gegnum stjórnmálaflokka. Svo er ég ekki alveg klár í hvað hann er að vísa með "meintir talsmenn launþega." Nenni þó ekki að eyða meiri tíma í hverju ég er ósammála.

En semsagt glæsilegt framlag í umræðuna, takk Borgar, yfir og út.


Rokkað til vinstri á fimmtudagskvöldið

Var beðin að koma eftirfarandi á framfæri og hvet alla til að gera hið sama! Ókeypis stuð í Iðnó á fimmtudaginn. Ekki verra fyrir UVG að eiga svona vel plöggaðan formann í bransanum. 

Ung vinstri græn bjóða þér á tónleika í Iðnó fimmtudaginn 4. maí klukkan 20. Tónlistarfólkið Benny Crespo's Gang, Rósa Guðmundsdóttir, Helgi Valur, Byssupiss, Mammút, Múgsefjun, Jan Mayen, Hraun og Norton bjóða upp í dans. Kynnir verður Andrea Jónsdóttir. Allir velkomnir og ókeypis inn.


Land hinna frjálsu (og Anna Pála þarf hjálp)

Þegar ég var í Boston 2003 get ég svo svarið að ég var aldrei afgreidd eða af þjónustuð af einhverjum sem var ekki innflytjandi. Það gilti alveg jafnt um háklassahótelið okkar þar sem ég keypti dýrustu viskíflösku sem ég hef drukkið (undir aldri og afgreidd undir borðið sjáiði), limmuna sem við fengum að sitja í fyrir gæsku bílstjórans og Donkin Donuts þar sem ég fékk versta kaffi í heimi.

Flott baráttuaðferð hjá þeim í Landi hinna frjálsu í dag. Sem minnir mig á flottustu setninguna úr stórvirkinu Karate Kid. "Land of Free, Home of Brave." En ég vona að þetta skili árangri hjá þeim.

Þessi setning "... þeir fá einungis að vera í landinu í sex ár ef sannað þykir að enginn Bandaríkjamaður fáist í störf sem þeir vinna," endurspeglar viðhorfið til innflytjenda á dapurlegan hátt. Af hverju mega innflytjendur ekki vera forstjórar ef þeir hafa hæfileika til? Enn verra er að líklega hafa margir þeirra hæfileika, en ekki tækifæri. Þeir geta átt drauma, en enga von.

"Við báðum um vinnuafl, en fengum fólk," sagði einhver hetja sem ég man ekki hver er. Það er sárt til þess að hugsa að við ætlum að búa til lágstétt innflytjenda hér á landi. Ef við viljum snúa þeirri þróun við hlýtur að vera grundvallaratriði að efla menntakerfið þar sem það snýr að innflytjendum.

Annars: Mig vantar glósur úr Heimspekilegum forspjallsvísindum fyrir lagadeild!!! Þetta er í u.þ.b. fimmta skiptið sem ég er skráð í þennan stórskemmtilega áfanga sem þarf alltaf að sitja á hakanum. Á laugardag er próf í honum og á mánudag fer ég í kröfurétt sem vinnugleðin þarf að beinast að. Plís.


mbl.is Fjölmenn mótmæli gegn breytingum á bandarískri innflytjendalöggjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handtekin fyrir að segja fuck

f_my_pictures_germaine_greer.jpg

Var að komast að því að  pönkari femínismans með meiru, Germaine Greer  er á leið til landsins í júní. Þetta er svona háklassa intellektúal sem er samt alræmd fyrir að segja nákvæmlega það sem henni dettur í hug, þegar henni dettur það í hug og finnst kjarnafjölskyldan hallærisleg. Var handtekin á Nýja-Sjálandi 1972 fyrir að segja "fuck" og "bullshit" í ræðu. Djöfull væri ég til í að heyra hana tala. Vona að hún valdi sem allra mestu fjaðrafoki.

Annars er ég frekar ánægð með  hana doktor Herdísi Þorgeirsdóttur að skipuleggja þessar kvennanetsráðstefnur. Way to go. Hörkukvendi og fræðimaður með doktorspróf í lögum frá Háskólanum í Lundi. Rannsóknarstaða við Raoul Wallenberg stofnunina þar í bæ er líka með flottari störfum. Fyrir utan að maður hatar nú ekki að vera í Lundi.


Félagshyggjan

Af hverju að gera hlutina saman? Ef þú getur gert þá einn og nákvæmlega eins og þú vilt.

Stór á sex komma eitthvað sekúndum

Maður dagsins sem nú er að hefjast er Valdi vinur. Þessi mynd var tekin af okkur við mjög gott tækifæri. Ég hafði skömmu áður lent í nettri andnauð vegna mikils metnaðar í drykkjukeppni. Það var síðasta keppnisgreinin ásamt ræðukeppni á Orator-Mágus deginum (laganema-viðskiptafræðinemakeppni. Plebbi plebbason.) Erfiðið borgaði sig samt. Eftir að úrslit dagsins voru tilkynnt dansaði ég uppi á borði og var í alla staði óþolandi. Svo skáluðum við Valdi og fleiri í bjór í þessum bikar. Við bikarinn fórum í bæinn saman og ég drakk úr honum eina þrjá bjóra með góðra manna aðstoð.

Bjór er góður. Valdi er góður.


afmaeli_2006_093_13231.jpg

Þetta er allt að koma

Jæja. Kirkjan er að taka vel við sér samkvæmt þessari frétt. Sem er reyndar sú lengsta sem ég hef lesið á mbl.is að ég held. Í lokin eru drög að ályktun kirkjunnar um ekki-hjónabönd samkynhneigðra, sem er þó nokkuð í rétta átt. En af hverju þarf hjónaband að vera "sáttmáli karls og konu?"

Ritstjórn annapala.blog.is fagnar þó þessari löngu tímabæru viðurkenningu þjóðkirkjunnar:

3. Þjóðkirkjan viðurkennir að kynhneigð fólks sé mismunandi og ítrekar að samkynhneigðir eru hluti af kirkju Krists og lifa undir fagnaðarerindi hans.

4. Þjóðkirkjan vill styðja allt kristið fólk í viðleitni þess til að temja sér ábyrgan lífstíl og hvetur alla, jafnt samkynhneigða sem gagnkynhneigða, til að hlýða köllun Krists til náungakærleika og ábyrgðar í kynlífi, sambúð og fjölskyldulífi.

5. Þjóðkirkjan álítur enga eina skipan fjölskyldunnar réttari en aðra. Kristur ávarpar alla jafnt án tillits til fjölskyldustöðu.

6. Þjóðkirkjan styður hjónabandið sem sáttmála karls og konu á forsendum hins kristna kærleika. Þjóðkirkjan styður ennfremur önnur sambúðarform á sömu forsendum.

7. Þjóðkirkjan styður þá einstaklinga af sama kyni sem vilja búa saman í ást og trúmennsku og staðfesta samvist sína og skuldbindingar og heimilar prestum sínum að blessa sambúð þeirra samkvæmt þar til ætluðu formi, að því er segir í tilkynningu.


mbl.is Drög að ályktun um staðfesta samvist lögð fram til umræðu á prestastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knnnnús

Mér líður eins og síma í hleðslu þegar ég er knúsuð.

Það er svo gott. Ég vildi að við værum duglegri við það hér á klakanum. Sjálf kenni ég uppeldinu um áhuga minn á knúsi. Heima hjá mér þykir mjög náttúrulegt að knúsast. En ég hef fengið misjöfn viðbrögð þegar ég reyni óforsvarendis að knúsa fólk og þá sérstaklega ef ég hef ekki þekkt viðkomandi lengi eða náið. Hafið bara í huga að hér er ekki um óeðli að ræða eða kynferðislegan áhuga.

Endilega knúsið mig sem oftast, þá líður mér betur. Þegar ég var ung og í framboði fyrir Röskvu í fyrsta sinn minnist ég þess að hafa planað stofnun Snertiþarfarfélagsins ásamt félögum mínum Grétari og Hrafni. Þar var ekki um óeðli að ræða. Ekki vitlaus hugmynd, maður hefur nú verið í ýmsum vafasömum félögum í gegnum tíðina. En það er efni í aðra færslu.


Ljósvaki Mbl í dag: Tímasóun fyrir byrjendur

FYRIR námsmenn sem byrjaðir eru í prófum, eða fólk sem vill meðvitað eða ómeðvitað slæpast í vinnu eða við önnur verk, er ýmislegt í boði. Misgóð sjónvarpsdagskrá er að sjálfsögðu í boði allan sólarhringinn. Gallinn við að setjast niður og horfa á sjónvarp er að þá verður maður of meðvitaður um að vera að slæpast, auk þess sem ekki allir hafa aðgang að sjónvarpi í vinnunni og yfirmann sem finnst glápið í lagi.

Það er hins vegar allt hægt með tölvum nú til dags. Tölvan er að sjálfsögðu nauðsynlegt atvinnutæki fyrir að ég held meirihluta fólks á vinnumarkaði og fjöldi stúdenta notast við fartölvu við námið.

Fyrsta skref. Maður kveikir á tölvunni og opnar það sem maður á að vera að fást við, svo sem glósur og greinar sem tengjast náminu. Annað skref. Opna msn spjallforritið, ef það gerist ekki sjálfkrafa. Muna að bæta inn öllum sem maður þekkir og mörgum í útlöndum til að geta spjallað allan sólarhringinn. Þriðja skref. Opna tölvupóstinn sinn, lesa alla brandara vel og eyða miklu púðri í að svara pósti sem þarf ekki að svara. Taka til í pósthólfinu í neyð ef ekkert annað er að gera. Eiga kannski tvö pósthólf.

Fjórða skref. Skoða vefsíður allra fjölmiðla á tíu mínútna fresti og lesa ómerkilegar fréttir vel. Fimmta skref. Lesa öll pólitísk vefrit og pistla Egils Helgasonar vel. Sjötta skref. Taka bloggrúntinn og skoða blogg allra vina og vandamanna tvisvar á dag. Skoða líka bloggsíður fólks sem maður þekkir ekki. Blogga sjálfur um allt og ekkert. Sjöunda skref. Fá sér iPod ef maður á ekki svoleiðis. Eyða löngum stundum í að hlaða niður lögum og skipuleggja prógrammið. Mjög mikilvægt að hafa rétta tónlist við höndina, annars getur maður alls ekki lært. Áttunda skref. Hlaða niður asnalegum bröndurum og kvikmyndabrotum, jafnvel heilu sjónvarpsþáttunum til að létta sér stífan lestur. Níunda skref. Missa sig í að plana eitthvað sem má vel gerast seinna, en verður allt í einu mjög mikilvægt að skipuleggja. Tíunda skref. Kíkja á glósurnar?

Svo getur verið gott að leggjast upp í sófa eftir erfiðan vinnudag og horfa á eins og eina eða tvær endursýningar af Sex and the City eða Boston Legal.

Anna Pála Sverrisdóttir




Haglél

Var ekki komið vor?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband