29.7.2006 | 11:07
Apóríið og Vestfirðir
Eru fleiri en ég sem fara stundum í bakatekið?
Voða gaman í vinnunni á laugardagsmorgni þegar enginn svarar í símann. Annars fór ég fyrir vinnuna á Vestfirði mánudag og þriðjudag. Það var magnað. Ég hafði aldrei komið til Vestfjarða áður. Við Árni Sæberg keyrðum frá Ísafirði um Djúpið og út í Vatnsfjörð. Stoppaði vel í Súðavík á mánudagskvöldið og ræddi við gott fólk. Náðum svo að keyra út í Bolungarvík og um göngin yfir til Flateyrar áður en kom að flugi á þriðjudagskvöldið. Rosalega er Önundarfjörðurinn mikilfenglegur. Örugglega auðvelt að vera skáld þar. Merkilegt líka að sjá þetta mannvirki sem snjóflóðavarnargarðurinn er. Hann fellur reyndar mjög vel inn í umhverfið.
Og aldrei fór ég austur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2006 | 17:56
Er allt að fara til andskotans í þessu landi?
Mér reiknast svo til að Þorgerður Katrín sé fyrsti kvenkyns forsætisráðherra Íslands. Þótt aðeins sé um tvær vikur að ræða að þessu sinni, er þetta samt merkilegur áfangi. Ég segi bara til hamingju Þorgerður og til hamingju við öll. Meira svona! Við öfgafemínistar fögnum gríðarlega.
Annars er ég að fara norður skv. skyndiákvörðun fyrir hálftíma síðan. Magnað. Hefði auðvitað dregið Bjarnið austur, en sá vægir sem vitið hefur meira eða þannig. Svo á maðurinn lítið eftir að hitta foreldra sína næsta árið. Biðja ekki allir að heilsa Brynjuísnum?
![]() |
Þorgerður Katrín gegnir störfum forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2006 | 15:20
Hahaha
Mögnuð auglýsing fyrir snyrtivöruframleiðandann Biotherm í sunnudagsblaði Moggans. Guðni Einarsson, sem augljóslega fylgist vel með því nýjasta í snyrtivörum, var að benda mér á þetta. Um er að ræða heilsíðuauglýsingu undir fyrirsögninni SÝNDU MAGANN - ÞAÐ ER FRÁBÆRT.
"Prófaðu CELLULI-CHOC fyrir aðra hluta líkamans, en gelið vinnur gegn appelsínuhúð. Það gerir átakið að hreinni ánægju sem þú nýtur á hverjum morgni, fullkomlega árangurslaust. Sérlega ferskt, silkikennt gel með sítruskeimi: Það er hreinlega girnilegt að grenna sig!"
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2006 | 11:04
Stundum bara borgar sig ekki að spara.
Mér urðu á þau skelfilegu mistök að fjárfesta í Euroshopper súkkulaði. Það gerðist í síðustu viku og enn er þetta súkkulaði til staðar í vinnuhillunni og ber þar með nafnið "varabirgðirnar" með rentu. Varabirgðirnar eru yfirleitt mun fljótari að hverfa.
Í gær fékk Sigga að ganga í varabirgðirnar og sakar mig nú um að hafa reynt að eitra fyrir sér.
Ég sem kíkti á kakóinnihaldið og það reyndist vera a.m.k. 56% sem ætti að vera merki um gæði. En kakó er víst það ekki sama og kakó. Svipað og með kaffibaunirnar.
11.7.2006 | 15:36
Þarna er ég að fara
![]() |
Yfir eitt hundrað látnir í sprengingum í Mumbai á Indlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2006 | 01:49
Halló
Ég vil koma einu á framfæri sem mér finnst alveg afspyrnu hallærislegt. Var að vesenast inni á vísi.is um daginn og datt niður á að lesa grein eftir Völu Bjarna sem oft er með mjög góða punkta. Allavega. Vinstra megin á síðunni sést yfirlit yfir alla fasta penna Fréttablaðsins. Af þeim eru listaðir 25 karlar og 6 konur. Konur semsagt 19.4% fastra penna. Ég veit að margir þessara penna skrifa ekki fyrir blaðið lengur. En í "uppsöfnuðum skrifum," eins og uppsöfnuðu áhorfi speglast samt raunveruleiki. Veit einhver hver þessi hlutföll eru núna?
Nú veit ég mjög vel að fjölmiðlar landsins eru allir frekar hallærislegir í jafnréttismálum og minn er þar síst undanskilinn, hvað varðar t.d. kynjahlutföll á ritstjórn og í ekki síst í stjórnunarstöðum. Hef þó tröllatrú á að það lagist á næstu árum skv. nýlegri stefnubreytingu. Styrmi virðist full alvara með þetta, sbr: "Við eigum að hætta að leita að útskýringum og afsökunum og einfaldlega gera eitthvað í þessum málum." Ég er mjög ánægð með þessa afstöðu og bíð spennt.
Fréttablaðið virðist að mörgu leyti vera að koma til og í fljótu bragði myndi ég segja að þar standi jafnréttismálin best af fjölmiðlum landsins. Tvær konur af þremur fréttastjórum til dæmis. Spennandi að sjá hver verður látin/n fylla skarð Sigurjóns, er ekki Arndís Þorgeirsdóttir vel að því komin?
Að sjálfsögðu er svo ekki hægt að ráða konu sem aðalritstjóra á neinu þessara blaða.
10.7.2006 | 12:18
Múslimatal? Hommatal? Grey skinnin
Allir töfrarnir voru hjá Frökkum. Stundum er það bara ekki nóg.
Miklar pælingar uppi um hvað í fjandanum Mazzerati hafi eiginlega sagt við Zizou þegar þessi maður sem ekki drýpur af venjulega, sneri sér við á punktinum og skallaði gaurinn í bringuna eins og frægt er orðið. Mér var búið að detta í hug eitthvað hommatal, í kjölfar einhvers káfs í aðdragandanum og meintra geirvörtuklípinga. Halla er þó með jafnvel betri kenningu: Var Mazzerati að drulla yfir múslima?
Hvað sem því líður er athæfið auðvitað óafsakanlegt. En ég skil hann Zidane samt svo ágætlega. Auðvitað getur maður orðið reiður í hita leiksins, hvað þá ef einhver gerir í því að espa þig upp. Fann talsvert til með honum þegar hann var hvergi nálægt við verðlaunaafhendinguna. Og talandi um að finna til, af hverju gátu ekki þýsku tökumennirnir leyft Trezeguet að vera í friði eftir leikinn í staðinn fyrir að sýna hann endurtekið í nærmynd?
![]() |
Zidane kjörinn besti leikmaður HM |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.7.2006 | 18:00
Maður heldur að maður sé svo fullorðinn
3.7.2006 | 03:17
"Get ekki hætt..."
Þetta er aðeins of fyndið til að deila því ekki og nógu langt um liðið. Sagan hefst á nýárskvöldi árið 2006. Hópur af hressum stúlkum ákveður með engum fyrirvara að fagna nýju ári -aftur- með því að blása til teiti. Gestir þurftu að vera klæddir í kjóla, gott ef ekki vera róttækir og drykkfelldir líka.
Í partýinu voru blandaðir kokkteilar af ýmsum gerðum og hlustað á tónlist tíunda áratugarins. Að lokum fór hópurinn í bæinn í stórum leigubíl og allir settu á sig sama eldrauða varalitinn á leiðinni. Augljóslega voru ekki allir jafn harðir af sér í djamminu og þessar stelpur því talsvert þurfti að leggja á sig til að finna opinn bar og fólk í stuði. Eftir gott "single-handed" tjútt á Kaffibarnum og hinum ofurkúl stað Óliver var ákveðið að gera eitthvað sér til dægrastyttingar. Um nokkurn tíma hafði það verið mikið trend hjá aðalsöguhetjunni að taka gsm síma fólks traustataki á djamminu og senda random sms í random símanúmer. Þetta hafði leitt af sér ýmislegt skemmtilegt, sbr. skilaboðin "Viltu sofa hjá mér. Gerðu það," sem lentu á mis óheppilegum stöðum.
Nú. Slík var stemmningin á þessu kvöldi að þar sem stúlknagerið sat á annarri hæð Óliver var ákveðið að leika þennan hressa leik. Símum var skellt á borðið, hver og ein tók einhvern síma af handahófi og notaði hann til fyrrgreindra hrekkjasendinga. Aðalsöguhetjan fékk símann hennar Söndru til umráða og sendi skilaboð á fyrrverandi kennara Söndru, djasshönkið Jóel Pálsson. Ekki er munað hvað stóð þar, getur einhver hjálpað til? En það var víst sérlega kvikindislegt enda ískraði hláturinn í hetjunni okkar.
Ýmislegt fleira gekk þarna á. Kristín Tómasdóttir "sendi" skilaboð á Frosta í Mínus, eitthvað á þá leið hvað hún væri heit. Fékk til baka "Hvar ertu?" Allir urðu illa úti -nema hetjan okkar. Sólrún er augljóslega svo hjartagóð að hetjan "sendi" eitthvað mjög pent sms á mann sem myndi hvort sem var nákvæmlega geta sér til um aðstæðurnar.
Ekki var Sandra sátt með þetta... Og við stökkvum fram í tíma. Það er að morgni 2. janúar og nokkrar úr hópnum mættar ELD hressar klukkan átta í vörutalningu í Byggt og búið, í þágu málstaðarins. Klukkan tíu skreppum við Eva María í Hagkaup að kaupa þynnkubjargvætti (fórum hamförum í talningu þrátt fyrir þynnku svo það komi fram). Við kassann eru þessi venjulegu flennifyrirsagnatímarit. "LOGI OG SVANHILDUR ÓLÉTT." Á Evu Maríu kemur mjög undarlegur svipur. Eftir smástund er Anna Pála búin að átta sig á að ekki er allt með felldu en Eva ber við minnistapi um atburði næturinnar. Hringt er í Söndru.
A: SANDRA ÓSK!
S: uuujá?
A: SENDIR ÞÚ SMS Á LOGA BERGMANN ÚR SÍMANUM MÍNUM Í NÓTT?
S: uuu... Já?
A: HVAÐ STÓÐ Í ÞVÍ?!
S: Það stóð: "Ég get ekki hætt að hugsa um þig."
A: #$!&!!!
Þetta þótti Önnu Pálu alveg sérlega ófyndið á þeim tíma í ljósi fyrrgreindrar óléttu. Nú voru tveir slæmir kostir í stöðunni, þar sem Anna Pála stendur fyrir neðan rúllustigann í Kringlunni að morgni annars janúar með lófann yfir augunum.
a) Senda annað sms og biðjast afsökunar = Líta út fyrir að vera orðin þunn og með móral.
b) Gera ekkert og þykjast hafa sent í rangt númer (eeeeinmitt).
Anna Pála velur fyrri kostinn. Anna Pála mætir í upptöku á Meistaranum þremur vikum seinna, eins og kúkur, en þó farin að hafa nettan húmor fyrir atvikinu. Logi hefur mikinn húmor fyrir atvikinu. Sagan búin.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 03:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)