Asía yfirgefin & Jólasveinninn tryllir lýðinn í Sydney

Ég hefði getað bloggað úr flugvél í fyrrinótt. Flugvélinni á leið frá síðasta Asíulandi ferðarinnar. Bravó fyrir Singapore Air, besta flugfélagi heims skv. lesendum Condé Nast Traveller. Og bravó fyrir borginni sem við flugum til. Bestu borg heims skv. sömu lesendum. Sydney lofar nokkuð góðu.

Rökum nóttum í Singapore var eytt í kompaníi fjögurra karlmanna. Í tíu gluggalausum fermetrum. Backpackers Cozy Corner er ekkert ofsalega kósý en vel staðsett og mjög ódýrt. Vantaði pínu upp á hreinlæti og öryggi, en hver er að velta sér upp úr svoleiðis.

Sérlega smart að labba af þessum líklega ódýrasta gististað borgarinnar á dýrustu hótelin í kokkteila. En það er víst lélegur túristi sem heimsækir Singapore án þess að fara í Singapore Sling á Long barnum á Raffles hótelinu þar sem sá drykkur var fundinn upp.

Pínulítil eyja. Engar náttúruauðlindir. En eitt þróaðasta og metnaðarfyllsta ríki heims. Asíuland með sterka innviði samfélags, öfluga heilsugæslu og eitt besta menntakerfi sem finnst. Ýmsir hlutar Asíu, nýlendutími undir breskri stjórn og nútími í einum hrærigraut. Singapore gerir mann forvitinn. Hvernig virkar þetta land? Lítill fugl hefur hvíslað því að metnaðarfull stjórnvöld (með sama flokk við stjórnvölinn frá lýðveldisstofnun fyrir ekki svo mörgum áratugum...) réttlæti átroðslu á stjórnmálalegum og borgaralegum réttindum að einhverju marki. Allir hafa náttúrulega heyrt um himinháar sektir fyrir að henda rusli á götuna eða reykja á vitlausum stöðum. En borgin er líka óaðfinnanlega hrein. Og tilfinningin að fólki líði almennt vel. Lesa meira um stjórnmálin og stjórnkerfið þegar tími gefst til.

Og það var gaman að sjá metnaðinn. Singapore er ekki fjölmennt land/borg. En leik- og tónlistarhúsið þeirra við sjávarsíðuna, umdeilt og kostnaðarsamt, var algjör perla. Þótt ekki gæfist tími til að sjá eða heyra að þessu sinni var gaman að skoða "Esplanade"að innan og utan. Mannlífið beintengt með hönnunar- og súkkulaðibúðum, kaffihúsum o.fl. Fullkomið bókasafn helgað leikhúsi, tónlist og kvikmyndum fléttað inn í og nóg af listaskólastúdentum að læra þar. Verið að byggja yfir listaháskóla þarna nálægt ef maður sá rétt. Hugsað stórt.

Fyrst við erum að ræða borgarskipulag. Stundum er amast við að útlendingar myndi sjálfstæð samfélög innan þess sem þeir búa í. En ef til verða hverfi sem heita Little India og Chinatown, þá set ég a.m.k. báða þumla á loft. Í Singapore renna þessi hverfi vel saman við aðra borgarhluta. En þau gefa borginni svo mikinn aukreitis lit og bragð.

Í Singapore var verið að jólaskreyta. Í Japan í byrjun mánaðarins var komið jóladót í margar búðir. Og í gærkvöldi (nú er miðnætti á Íslandi og klukkan að verða tíu hér) var kveikt á aðaljólatrénu í Sidney. Ástralir búa sig undir sumarjól og mættu á torgið að syngja Heims um ból í stuttermabol með jólasveinahúfu. Löggan tók sig ekki alvarlegar en að mæta með jólasveinahatta og setja hreindýrshorn á hestana sína. Hvað ætlar lögreglan í Reykjavík að gera þegar norska jólatréð kemur? Eða er það komið?

Og Asía að baki eftir tveggja mánaða flakk. Svipmyndir í hausnum. Karlmenn að leiðast í Indlandi. Gulur litur um allt í Taílandi af því kóngurinn fæddist á mánudegi og gulur er mánudagslitur. Kínverjar sem velta sér ekki upp úr kurteisisveseni og troða sér fram fyrir í öllum röðum -maður kemst inn í þetta smám saman. Japanir sem eru duglegastir og vinnusamastir en detta líka rosalega í það öðru hvoru -kannski mótvægi og hljómar eins og þjóð sem maður þekkir ágætlega. Nepalinn í fyrirframákveðna hjónabandinu sem skildi ekki alveg hvernig deitmenningin virkar á Íslandi -en hafði leyft syni sínum að giftast af ást. Og Singapore-búar sem deyja ekki ráðalausir og sólarstrandarlausir og flytja bara inn sand og planta pálmatrjám til að búa til skemmtiferðaeyju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vigdís Sigurðardóttir

Held það sé rétt sem þú sagðir mér á msn um daginn að ég hefði fílað Singapore.  Heyrist það alveg af lýsingunni.  Reyndar eru allar lýsingar frá þér svo skemmtilegar og vel skrifaðar að þær vekja hver ein og einasta áhuga manns á því að skoða viðkomandi stað/heimshluta.

RISARISA knús héðan af klakanum þar sem próflestur, orkudrykkir og joggingföt eru að fara að verða allsráðandi...Sakna þín snúlla!

Vigdís Sigurðardóttir, 24.11.2006 kl. 00:19

2 Smámynd: Kristján Haukur Magnússon

Ástralía er mjög skemmtileg, Ávextir seldir í fötum, brimbretti, partýmenningin, þótt persónulega finnist mér meiri partýmenning á austurströnd Queensland en Sydney er líka frábær. Það fyrsta sem ég fékk mér þegar ég kom til Ástralíu var kengúrukjöt, alveg rosalega gott ef eldað á réttan hátt. Singapore er líka skemmtileg borg, ein hreinasta borg sem ég hef séð.

Skemmtu þér nú vel á eyjaálfunni

Kristján Haukur Magnússon, 25.11.2006 kl. 05:41

3 identicon

Hæhæ. Alltaf gaman að lesa bloggin hérna stóra sys. Skemmtu þér áfram vel og ekki gera neitt sem lætur mömmu fara á taugum:) Það verður skrýtið að hafa þig ekki hérna á jólunum, hver á núna að baka jólakonfektið og horfa á The Grinch með mér? hehe Knús og kossar frá öllum hérna heima.

Sunna Mjöll Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2006 kl. 22:04

4 Smámynd: Ólafur fannberg

Ólafur fannberg, 27.11.2006 kl. 06:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband