Í berjamó

Af alkunnri fimi og tign tókst mér að missa hálfs kílóa bláberjaöskju niður í stigahús Morgunblaðsins áðan. Þegar ég var hætt að öskra og farin að hlæja að því hvað þau dreifðust óskiljanlega víða átti ég þessa fínu gæðastund í berjamó innanhúss.

Það verður öðruvísi þegar við flytjum upp á "Kárahnj... afsakið, Hádegismóa" því þar hlýtur að vera hægt að fara í alvöru berjamó. Enda um mikla útivistarperlu að ræða.

Nú er ég búin að setja bláberin í sund og er að borða þau. Eins og einhver benti á hérna: Maður verður nú að borða smá drullu öðru hvoru til að drepast ekki úr ofhreinlætissjúkdómum


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband