Handtekin fyrir að segja fuck

f_my_pictures_germaine_greer.jpg

Var að komast að því að  pönkari femínismans með meiru, Germaine Greer  er á leið til landsins í júní. Þetta er svona háklassa intellektúal sem er samt alræmd fyrir að segja nákvæmlega það sem henni dettur í hug, þegar henni dettur það í hug og finnst kjarnafjölskyldan hallærisleg. Var handtekin á Nýja-Sjálandi 1972 fyrir að segja "fuck" og "bullshit" í ræðu. Djöfull væri ég til í að heyra hana tala. Vona að hún valdi sem allra mestu fjaðrafoki.

Annars er ég frekar ánægð með  hana doktor Herdísi Þorgeirsdóttur að skipuleggja þessar kvennanetsráðstefnur. Way to go. Hörkukvendi og fræðimaður með doktorspróf í lögum frá Háskólanum í Lundi. Rannsóknarstaða við Raoul Wallenberg stofnunina þar í bæ er líka með flottari störfum. Fyrir utan að maður hatar nú ekki að vera í Lundi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú nóg að horfa á þessa mynd til að sjá að þarna er hörkukvendi á ferð... Ég verð hálf skelkuð!

Ester (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 18:39

2 identicon

Það er nú nóg að horfa á þessa mynd til að sjá að þarna er hörkukvendi á ferð... Ég verð hálf skelkuð!

Ester (IP-tala skráð) 1.5.2006 kl. 18:40

3 Smámynd: Anna Pála Sverrisdóttir

Já þetta var skemmtilegasta myndin af henni, sýnir hana eins og ég vil. Annars er þetta frekar venjuleg kona þegar hún er ekki svona uppstillt.

Anna Pála Sverrisdóttir, 1.5.2006 kl. 19:46

4 identicon

Ég skal líka segja Fuck

Rósa (IP-tala skráð) 5.5.2006 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband