27.4.2008 | 02:21
Nýtt líf í Helguvík
Ungir jafnaðarmenn og Græna netið brugðu sér út í Helguvík í gær. Tilgangurinn var táknrænn: Við gróðursettum á iðnaðarsvæði fyrirhugaðs álvers. Með þessum nýju vaxtarsprotum var markmiðið að beina athyglinni að fjölbreyttari möguleikum í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum en þeim að smella mengandi álveri niður í bakgarðinum hjá bæjarbúum í Reykjanesbæ og í Garði. Vel við hæfi á degi umhverfisins. Það var einkum tvennt sem við vildum vekja athygli á en það eru nýjar fréttir sem mæla gegn uppbyggingu álvers. Annars vegar kemur fram í ársskýrslu Hitaveitu Suðurnesja að fjölda smærri aðila hefði verið vísað frá með beiðnir um orku þar sem henni hefði verið ráðstafað í álver nú þegar. Hins vegar að í ljósi nýjustu frétta um framúrkeyrslu í mengun frá álveri Norðuráls á Grundartanga, verður að setja mjög stór spurningarmerki um hversu mikið þetta sama fyrirtæki mun menga í Helguvík. Hér er fréttin hjá RÚV.
---
Rondó er gott útvarp. Ég hef helst notað það til að hlusta á við vinnu þegar einbeitingin þarf að vera í lagi því þá vill hún batna, öfugt við ef ég hlusta á margt annað. Tilþrif í klassískum söng eru það eina sem fær mig til að slökkva á Rondó af því hann virkar truflandi á mig, öfugt við djassinn. Og nú er ég að hlusta á Rondó til að reyna að róa mig í svefn. Ég þarf að lesa fyrir próf og vesenast í Félagshyggjuverðlaunum UJ á morgun. Óska hinum nátthröfnunum sem eru að lesa þetta eftir að ég fer að sofa - og landsmönnum öllum auðvitað - alveg sérlega góðrar nætur.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Gott og ferskt framtak hjá ykkur. kv gb
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 15:06
Skógrækt fer okkur vel!
Eva Kamilla Einarsdóttir, 27.4.2008 kl. 15:57
Frekja ykkar umhverfisöfgafólks í Rvík. á sér lítil takmörk.Fengu þið leyfi hjá sveitarfélaginu Garður til að valsa þarna um.Og fenguð þið leyfi Norðuráls sem hefur lóðina.Ef ekki er búið að fjarlægja þetta þá skora ég á ykkur að gera það sjálf.Þið ættuð frekar að gróðursetja njóla við Ráðhúsið í R.vík,það væri við hæfi.
Sigurgeir Jónsson, 27.4.2008 kl. 16:28
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu, þá hefur losun gróðurhúsalofttegunda minkað um 20 prósent í Álverinu í Straumsvík og flúormengun um 98 prósent.
Þessi hrísla sem þið gróðursettuð þarna mun standa eins og hrísla í vindi og sennilega deyja áður en næsti vetur er liðinn.
Ég held þú ættir að skoða umhverfi álversins í Straumsvík og svo umhverfi fyrirtækjanna sem eru þarna á svæðinu. Það er talsverður munur á hversu það er miklu snyrtilegra hjá álverinu.
kveðja.
Rafn
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 17:43
Þegar ég var unglingur fór ég oft útá Berg, eins og kallað var. Þar á meðal í Helguvík. Þetta er með hrjóstugustu svæðum Íslands, og bara gott ef að það er hægt að skapa atvinnutækifæri í þessari auðn. Að reyna að rækta þar eitthvað er eins og að boða guðsorð í helvíti.
Ólafur B. Jónsson (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 22:08
bahahahhah.. eru þessir menn sem commenta hér lélagir leikarar í lélegri falinni myndavél?
Geiri Maggi (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.