10.3.2007 | 18:44
Skemmtileg kenning
Ef það ríkti í alvöru jafnrétti á Íslandi, þá væri Inga Jóna Þórðardóttir forsætisráðherra.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Femínismi | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Færsluflokkar
Tenglar
Ferðafélaginn
Hin eina sanna..
- Barbara Streisand
Nýi besti vinurinn
- Glitnir býður í heimsreisuna
Betri helmingurinn
- Bjarnið hafréttarpervert og gleðimaður
Fjarlæg lönd
sá er vitur er víða ratar
- Zimsenbabwe Erlendar fréttir
- Taddsikistan Í upphafi var Tadds
Röskvuhetjur
Enn ríða hetjur um héruð
- Strumpurinn Jafn-æðstistrumpur
- Þórhildur alltaf í karakter
- Don Torfi Betra hár en Michael Bolton
- Stígur Göngu hvað?
- Steindór Háskóla Íslands eina von
- Sólrún Lilja Gell from hell
- Lára Kristín Stubbur
- Gussan Flugbjörgunarsveitardeildin
- Herra Garðar daðurprinsinn
- Fannita Dorada daðurdrottningin
- Eva María lærði frönsku útaf rauðvíninu?
- Ási Þú átt svefnpoka í bílnum mínum
- Ástríður Sjarmatröllið
- Keipdúnkurinn Atli Bolla
- Ungfrú Alma MH-ings
- Dagný málum HÍ rauðan
- Grétar Guð sýruhaus!
- Völuspá krullustórveldið
- Formaður emeritus Eva mín
- Hægri höndin En með hjarta úr gulli
Familían
Þú velur þér vini..
- Vesturfararnir Í sólskinsríkinu Flórída
- Trúboðarnir Kristján og Helga með litlu krakkana þrjá
- Herkúles Alveg örugglega fyndnari en ég
Moggamafían
Mínir kæru samstarfsmenn
- Begga Í paradís á Grikklandi
- Árni Matt skákar hverjum sem er í skrifuðum orðum á sólarhring
- Davíð Logi veit meira en ég um utanríkismál
- Halla skákar Ragnheiði í töluðum orðum á mínútu
- Árni hin músin í jafnréttistilrauninni
- Svabbi Vinnur mig pottþétt í söngkeppni
- Hrund heldur að hún sé betri en ég í ljótudansi
Vinir
- Ester BestEr
- Jana doktorsnám í Cambridge. Í skikkju.
- Frambjóðandinn Úngi draumsnillíngur
- Kjallarasystur Í kjallaranum, dúa, á Reynimelnum, dúa
- Hákon Verkfræðineminn sem ég tengi við ljúfa lífið
- Ljósmyndarinn She is making it happen
- Barþjónninn Barþjónn fyrst, laganemi svo
- Daggan Kokhraustasti bloggarinn
- Sandkastalinn Sandra mín Ósk í Gautaborg
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 1735
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ó já.
Dagbjört Hákonardóttir, 10.3.2007 kl. 18:52
Rannsóknir hafa staðfest að lágvaxnir karlmenn hafa síður möguleika á stöðhækkunum og hafa lægri laun en hávaxnir karlmenn. Þeir - þá samkvæmt sömu skilgreiningu - njóta ekki alvöru jafnréttis.
Og talandi útfrá stjórnarsetureglugerðum Norðmanna: Á löggjafinn einungis að binda í lög rétt kvenna? Hvað með öryrkja? Hvað með lágvaxna karlmenn?
Hvar endar þetta? Er ekki bara best að ríkið tilnefni í allar stjórnir einkafyrirtækja?
Svar óskast.
Kalli (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 00:41
Auðvitað á löggjafinn að ráðast gegn öllu misrétti Kalli, en konur geta ekki barist fyrir alla!...lávaxnir karlmenn geta myndað sín eigin samtök!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 11.3.2007 kl. 12:09
Já, ég er nú alveg sammála því. Geir og Inga Jóna byrjuðu bæði ung í starfi í Sjálfstæðisflokknum og Inga Jóna hefur verið mjög dugleg gengum tíðina og starfað að mörgum góðum málum. Þau kynnstust held ég einmitt í Sjálfstæðisflokknum.
Það er oft talað um flokkapólitík í mannaráðningum en flokksmaskínan muldi nú ekki mikið þegar Inga Jóna sótti á sínum tíma um að verða útvarpsstjóri. Þá réð menntamálaráðherra ágætan prest sem hafði það helst til síns ágætis að hafa hlustað mikið á útvarp. Inga Jóna var miklu betri kandidat, hún var þá formaður útvarpsráðs og sagi af sér þegar hún var sniðgengin þarna og ég hef oft harmað það að hún skyldi ekki verða útvarpsstjóri. Þá hefði margt verið öðruvísi í íslenskri fjölmiðlun.
Inga Jóna er líka ágætur femínisti (kallar sig sennilega jafnréttissinna því Sjálfstæðisflokkurinn er ennþá þannig að það getur valdið hjartatruflunum hjá sumum þar innanborðs að heyra orð eins og femínisti)
Salvör Kristjana Gissurardóttir, 11.3.2007 kl. 13:52
Þannig að þegar alvöru jafnrétti er náð þá munu stjórnir fyrirtækja og framboðslistar stjórnmálaflokka allir líta svona út:
1 hávaxin kona, 1 lágvaxin kona, 1 hávaxinn karlmaður, 1 lágvaxinn karlmaður, öryrkjar af báðum kynum, nýbúar af báðum kynum (meðalhæð).
Það er rétt. Þetta er miklu auðveldara heldur en að velja eftir hæfileikum eða láta atkvæði fólksins ráða (þau vita augsýnilega ekkert hvað þau vilja).
Varðandi Ingu Jónu þá var það einfaldlega þannig að hún sem persóna naut ekki nægjanlegs fylgis innan flokksins. Annað er bara afsökun.
Kalli (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 15:26
Ég er jafnréttissinni og femínisti :)
Anna Pála Sverrisdóttir, 11.3.2007 kl. 16:05
Kalli- konur eru ekki minnihlutahópur! Þær eru helmingur jarðarbúa.
Kristín Tómasdóttir (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 18:36
Ég ætla að stela smá, heyrði þetta frábæra komment um daginn. Ágæt kona sagði að fullu jafnrétti yrði náð þegar óhæfar konur yrðu í stjórnunarstöðum.
Dagný Ósk Aradóttir, 11.3.2007 kl. 19:05
Nei það er rétt að konur eru ekki minnihlutahópur en að sögn femínista þá verður að hjálpa konum sérstaklega með lögum.
En það sem femínistar eiga erfitt með að útskýra er réttlætið í því að binda það í lög að einstaklingur sé ekki metin af verðleikum sínum. Hvað er réttlætið í því að brjóta þá grundvallarstoð þjóðfélags okkar um að allir þegnar séu jafnir fyrir lögum?
Kalli (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 20:19
... og Guðni væri fastur bak við stýrið á traktor út í sveit.
LI, Hal (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 12:08
Á ég að vita hver þessi Inga Jóna er?
Ef það ríkti í alvöru jafnrétti á íslandi fengju þá ekki allir sem vildu að prófa að vera forsætisráðherra til skiptis?
Orri (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 16:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.