Ég slapp, engar áhyggjur!

Hæ. Vildi bara láta vita - í kjölfar fjölda fyrirspurna frá vinum og ættingjum - að ég komst undan lögreglunni á hlaupum og faldi mig í mjólkurkælinum í Hagkaup. Jess.

En allavega. Er ennþá í hláturskasti þar sem ég fékk fréttina senda frá strák sem fannst fyndið að benda á að ég hefði greinilega komist undan.

Talandi um skrílslæti. Það verður partý á laugardaginn á 7-9-13 (skemmtistaðurinn á móti Sirkus á Klapparstígnum) fyrir þennan fjölda reiðra borgarbúa sem eru ósáttir við nýjan borgarstjórnarmeirihluta.

Og það eru kosningar til Stúdentaráðs! Það var kosið í dag og verður kosið á morgun og það er eins gott að allir sem vettlingi geta valdið og eru skráðir í HÍ, mæti og kjósi Röskvu sína. Áreiðanlegar heimildir herma að Valhöll fari hamförum í þágu Vöku, svo þetta verður alveg örugglega spennandi. 


mbl.is Skrílslæti í Kringlunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk Reykvíkingar

Takk Reykvíkingar fyrir að vera frábærir í dag! Fyrir að mæta í ráðhúsið, klappa og stappa og láta vita að það sem gerðist í ráðhúsinu í dag var skandall. Fólkið á pöllunum sýndi í verki það sem 75% Reykvíkinga eru reiðir yfir. Atburðirnir í ráðhúsinu í dag, sem skipta máli, eru nefnilega auðvitað ekki það sem gerðist á pöllunum heldur það sem var að gerast niðri í fundarsalnum. Ég var ánægð með mótmælin. Þetta gekk allt vel fyrir sig og á endanum gengum við fylktu liði saman út úr húsinu.

Ungliðahreyfingar Tjarnarkvartettsins áttu góða samvinnu um að boða okkar fólk á svæðið, en vænst þótti mér um að meðal þeirra mörg hundruð manna sem lögðu leið sína að ráðhúsinu, var alls konar fólk; gamalt og ungt; fólk sem lætur ekki bjóða sér ruglið  sem átti sér stað í dag. 

Mörg hundruð manns komu í ráðhúsið; það flæddi fólk frá anddyrinu inn og upp alla stigana og inná ráðhúspallana á þriðju hæð og allt um kring. Krafan var skýr: "Hættið við myndun nýs, óstarfhæfs meirihluta!"

Því miður fór það ekki þannig. Við völdum er tekinn meirihluti sem var myndaður á kolröngum forsendum, meira að segja á milli aðilanna sem mynda hann. Og spurningin er: Eru Sjálfstæðismenn stoltir af sínu fólki í borginni í dag? Ég held að fæstir þeirra geti svarað því játandi, eins og fylgishrunið hjá þeim sýnir. Fremst á málefnaskránni er að flugvöllurinn fari hvergi úr miðbænum - það segir Ólafur á meðan Vilhjálmur þvertekur fyrir að það sé rétt. 

Jæja, takk aftur fyrir í dag öll. Þetta er orðinn langur dagur.

--- 

Svo er ég ánægð með þennan hérna, bloggandi maður útí bæ: "Jú, ég skrapp niður í ráðhús í hádeginu,  þetta var glæsilegur ungur hópur af fólki sem vogaði sér að mótmæla spillingu og gjaldþroti Sjálfstæðismanna í Reykjavík.  Ég fór nú ekki inn í salinn, komst ekki, en ég var ánægður með unga fólkið.  Einu sinni var ég ungur, núna er ég sextíu..."


mbl.is Hávær mótmæli í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum ekkert hrokafull, við erum bara best!

blobloblo blo FLUTT Í VESTURBÆINN. Bloblo blo blo bloblo GREINARGERÐ Í MÁLFLUTNINGSKEPPNI, blobloblo SMÁSTRESS. Blobloblobloblo...

Ókei, nenni ekki heillri færslu svona en fannst þetta megafyndinn skets í áramótaskaupinu. Aðrir toppar voru t.d. skátarnir á Akureyri að banna börnum aðgang að barnaballi og margir fleiri sem ég hló upphátt að. Allir hins vegar sammála um að LOST-pælingin hafi verið tæp.

---

Og ég er flutt í Vesturbæinn minn á ný eftir þriggja mánaða framhjáhald með 101. Lindargatan var raunar frábær staður. En eftir tvö ár á Reynimelnum var Vestrið orðið mér kært, næstum því þannig að í brjóstinu væru farnar að bærast tilfinningar til KR þar sem ég horfði á völlinn af svölunum hjá mér og gekk iðulega kringum hann í göngutúrum. Í ljósi þess í hvaða húsi ég bý núna held ég að mér sé varla stætt á öðru en að temja mér að halda með "þessu liði"...

Barbara hefur kennt mér nokkra nytsamlega frasa, sbr þann í fyrirsögninni!

---

Það var bilað að gera hjá UJ í kringum jólin. Bæði kjaftur og partý. Fyrst kom stönt föstudaginn fyrir jól þar sem við höfðum gefið ríkisstjórninni jólasveinanöfn og afhentum jólaóskalista með ósk fyrir hvern þeirra. Hugsað sem góðlátlegt grín (ok kannski ekki allslaust við brodd) og hafði Valgerður Sverris t.a.m. húmor fyrir málinu: "og það að kenna glæsilegan menntamálaráðherrann við stúf er hreinn kvikindisskapur."

Svo kom þetta frábæra mál með Þorstein Davíðsson upp. Maður mátti varla vera að því að standa í Þorláksmessustressinu því við vorum svo mikið að koma út ályktun um málið. Fannst þetta nett leiðinlegt gagnvart Þorsteini sjálfum svona í aðdraganda jóla. Ekki víst að hann hafi ákveðið þetta sjálfur. Kannski var honum bara gerður Bjarnargreiði?

Að lokum héldum við heitt feitt partý þann 29. Elstu menn mundu ekki eftir svona mannmörgu og góðu partýi hjá UJ. Þurfti fyrir vikið að fara alltof snemma úr eldheitri afmælisgleði þessarar elskuðu konu en við náðum að bæta það upp að hluta með gæðastund í sushi fyrr um daginn.

--- 

Gleðilegt ár öll nær og fjær. Fyrir fólkið mitt sem ég er ekki búin að geta óskað gleðilegs árs: Mér þykir vænt um ykkur.

---

Nú þarf ég að halda áfram að undirbúa greinargerðina... 


Heimilisofbeldi = ástarævintýri

Jahá. Það er mikið að gera á stóru heimili (mitt er alveg næstum 40 fm.)

--- 

Þessa dagana stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Það er flott mál og ég hvet alla til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali hérna.

Í þessu samhengi verð ég að fá að koma á framfæri nokkru sem gerði mig svo reiða að tölvan fór næstum út um gluggann hjá mér. Tvisvar, með þriggja daga millibili. Gæti haft mörg orð um það en vil spyrja hvort ritstjórn vísis.is finnist í alvöru í lagi að skrifa tvær fréttir af dómsmáli sem snýst um alvarlegar ásakanir um heimilisofbeldi og tala um það í gamansömum tón sem "Ásláksástarævintýrið"? Fréttirnar eru hérna og hérna. Þetta finnst mér léleg fréttamennska og ekki í samræmi við þá grundvallarkröfu sem gerð er til blaðamanna um að sýna viðfangsefni sínu virðingu.

---

Annars er ég að detta í próftíð og það verður að vanda nóg sem þarf að gerast á þeim tíma hjá þessari konu. Nóg búið að vera að gera á önninni í verkefnavinnu, sem er veigamikil í mastersnáminu og þá er ekki tími til að lesa meðfram. Sem stendur er ég súr í hausnum að klára verkefni um "smámálið" réttinn til heilbrigðisþjónustu. Ekkert víðtækt eða neitt. Neinei.

Gekk illa heima og ákvað að hörfa á skrifstofu Ungra jafnaðarmanna við Hallveigarstíg í ljósi þess að þar yrði góður friður. Tja. Gleymdi mörg hundruð manna veislusalnum í kjallaranum. Þar er ball í gangi. Alltaf jafn gaman að full-orðnu fólki að dansa hóký póký. Pæling að fara bara niður, krassa partýið og gefa almannatryggingaréttinn upp á bátinn.


"Lögfræðingur"

Ég er útskrifuð með BA í lögfræði. Til hamingju með það Anna Pála mín. Þetta var nú aldeilis fínt hjá þér.

Vildi ekki halda stóra veislu fyrr en eftir tvö ár en þess í stað var dásamlegt matarboð með dásamlegum tólf manns og eftir það frábært partý hjá Völu minni Bé sem var að útskrifast sem alvöru lögfræðingur.

Pabbi hélt stutta tölu í matarboðinu. Skaut á ömmu fyrir að vera enn að reyna að ala sig upp. Hann ætlaði hins vegar að hætta að ala mig upp frá og með þessum degi. "Nú er ég hættur. It´s all yours. Ég bara styð þig."

Mamma sagðist ekki vera hætt að ala mig upp.

 

Nú þarf ég að snúa mér aftur að hópverkefninu um faðernismál.

E.s. Mér líður vel að vita að í Eþíópíu er ljónakisa að nafni Anna Pála að hugsa um snillingana mína þar, sbr. komment við seinustu færslu. Hvernig væri nú að konan Anna Pála léti sjá sig í Eþíópíu. Það er draumurinn.


Ég elska Elínu

Djöfull hata ég að vaska upp.  Þetta er ekki leggjandi á konu sem hefur alist upp með uppþvottavél frá unga aldri. Og háskólabókasafnið sendi mér haturspóst vegna bóka sem Bjarni pakkaði óvart ofan í kassa hjá mér, sem ég er óvart ekki búin að opna síðan. Bókasafnið segir að ég fái ekki að útskrifast ef ég verði ekki búin að skila þeim á miðvikudaginn. Útskriftin mín er annars (vonandi) á laugardaginn! 

Hins vegar elska ég Elínu Ósk, fyrir þessa frábæru grein sem hún á á Vefritinu í dag. Ég ætla samt rétt að vona að hún hafi rangt fyrir sér.

E.s. Takk Akureyringar fyrir að taka svona vel á móti mér þetta bráðskemmtilega síðastliðið fimmtudagskvöld. Ekki síður fá íbúar á Þjórsárbökkum þakkir fyrir að taka líka ofurvel á móti okkur á föstudeginum. Þess má geta að þegar öllum þessum ævintýrum var lokið þurfti ungfrúin að leggjast til svefns kl átta á föstudagskvöldinu og sofa til tíu daginn eftir. Og var samt þreytt á vinnudjammi á laugardagskvöldinu.


Japan-easy

Rétt upp hend sem sér eitthvað bogið við þessa mynd. Ég hafði a.m.k. ekki lyst þrátt fyrir þessa heiðarlegu tilraun til að selja manni morgunmat.

g-Japan-kina 189


Félagshyggjufögnuður á laugardagskvöldið

Borgin er unnin! Fyrir þau sem vilja fagna því að Reykjavíkurborg er á ný í höndum félagshyggjuaflanna, þá bendi ég á að félagshyggjufronturinn Vefritið fagnar ársafmæli sínu á laugardagskvöldið. Ölstofan milli kl. átta og tíu. Tilboð á barnum.

Við tökum að sjálfsögðu kredit fyrir þann félagshyggjubrag sem er kominn á Ísland síðan við stofnuðum Vefritið síðastliðið haust.

Ég er í munnlega lokaprófinu kl. kortér yfir átta í fyrramálið. Eigum við að ræða það eitthvað. 


VÚHÚ.

OK, það er ekki í hendi ennþá að "minnihlutinn" sé orðinn að alvöru meirihluta. En samt, vúhú! Hagsmunirnir sem eru að veði skipta miklu meira máli en þessir fjórir flokkar sem nú ræða saman. 

Íhaldið situr ennþá á fundi í Höfða með blaðamenn á hurðinni. Kenning frá Þóri: Þau eru að nota síðasta séns til að líma myndina af Bjarna Ben fasta við vegginn! 


"Meirihlutinn" í borgarstjórn í bulllinu. Öll á ráðhúspallana kl 16 á morgun miðvikudag

Jæja. Ég hef ekki tíma til að rekja hvernig hinn 48% "meirihluti" í borgarstjórn Reykjavíkur er að tapa sér í rugli. Það hafa ýmsir aðrir gert, s.s. Stefán Jón með mjöög fróðlega úttekt, svo og Dofri sem talar um dýrasta frekjukast Íslandssögunnar.

Ekki síst koma Aggi, Guðrún Birna og félagar í UJR sterk inn.

Öll sem geta eru hvött til að mæta á ráðhúspallana kl fjögur á morgun og sýna borgarfulltrúum "minnihlutans" stuðning í baráttu sinni gegn bullinu; baráttunni fyrir hagsmununum okkar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband